Guðlaugur Kr. Jörundsson - gulli.is

- óvirkur framhaldsskólakennari (s.s. með réttindi en ekki starfandi) -


Á Ted.com má finna margar fræðandi fyrirlestra. Reyndar ekki marga um skólamál en ég vil þó setja hér inn tengil á góðan fyrirlestur (áhugaverður, skemmtilegur og með góðan boðskap) Sir Ken Robinsons sem ber yfirskriftina Do schools kill creativity?

http://www.ted.com/index.php/talks/view/id/66

Ef vafrinn þinn hefur viðeigandi stuðning þá má sjá fyrirlesturinn beint hér að neðan :

Ferlimappan hefur nú verið metin. Er ég mjög sáttur við niðurstöðuna. Nú er bara að vona að ég haldi þessum vef lifandi, en það er þó ekki von á því á næstunni því ég veit ekki til þess að ég muni kenna eitthvað í bráð.

Þá hef ég lokið minni vinnu við þessa ferilmöppu, enda komið að skiladegi. Læt ég hana nú óhreyfða þar til að mat á henni hefur farið fram.

Þá er ferilmappan að mestu leiti tilbúin. Starfskenningin er komin í nánast endanlegt horf. Ég þyrfti eflaust að skera hana frekar niður, en niðurskurðurinn hefur verið það mikill að hann er farinn að skilja eftir sár á sálu minni. Eða svo gott sem.

Úr gullkistunni:

I hear and I forget. I see and I remember. I do and I understand
- Confucius

Kæri gestur.

Hér gefur að líta mína ferilmöppu fyrir námskeiðið Kennslufræði greinasviða og æfingakennsla (23.03.23) í fjarnámi til kennsluréttinda vorið 2007. Á hún að standa sem sjálfstætt verk og á að lýsa minni starfskenningu sem kennara. Vonandi verð ég duglegur að uppfæra vefinn eftir því sem ég þróast sem kennari. Hluti af vefnum er lokaður, en allir mega biðja um aðgang.

Ferilmappan á að vera tilbúin þann 27. aprí 2007.